Velkomin á heimasíðu Frakklandsferða
Við erum staðsett í Suður-Frakklandi, nánar tiltekið í Languedoc Roussillon.

Af hverju Languedoc Roussillon?
Languedoc Roussillon er ein af 22 sýslum Frakklands, með landamæri að Spáni, Andorra og Miðjarðarhafinu. Þetta er gífurlega fjölbreytt svæði sem spannar allt frá stórfenglegum Pyreníufjöllunum til magnaðra sólarstranda miðjarðarhafsins.  Á svæðinu blandast spænsk/katalónsk áhrif við rómverskar fornminjar og franska menningu.  Þar er að finna eitt stærsta fuglaverndunar friðsvæði Evrópu þar sem bleikir flamenco fuglar ráða ríkjum með hinum villta hvíta Camarque hesti. Milt loftslagið er með því heitasta sem finnst í Frakklandi og státar af rúmlega 300 sólardögum á ári.

Helstu borgir
Fyrst ber að nefna Montpellier sem er höfuðborg sýslunnar, háskólaborg sem iðar af fjölbreyttu mannlífi og spennandi menningarviðburðum. Aigues Mortes er gamalt borgarvirki þar sem krossfararnir höfðu viðdvöl á leið sinni til Jerusalem. Í Nimes var höfuðsetur Rómverja og er þar að finna einhverjar best varðveittu forminjar frá þeirra tímum. Perpignan við spænsku landamærin hefur verið kölluð franska katalónía. Kastalinn í Carcasonne er á heimsminjaskrá UNESCO. Séte sem oft er kölluð "Feneyjar Languedoc" er yndisleg hafnarborg sem bíður upp á veitingastaði með frábæru sjávarfangi. Saint Marie de la Mer er ókrýnd höfuðborg sígauna í Evrópu þar sem andi Gypsy Kings svífur yfir vötnum.

Af öðrum spennandi bæjum og borgum má nefna: Agde, Alès, Beaucaire, Béziers, Castelnaudary, Le Vigan, La-Grande-Motte, Limoux, Lodève, Lunel, Mende, Narbonne, Pézenas, Sommières, Vauvert........